Skoða bók

Rúna

Sigmundur Ernir Rúnarsson  

Þóra Sigríður Ingólfsdóttir  

05:21 klst.  

2017  

Engin íslensk kona hefur unnið jafn glæsta sigra á hestbaki heima og erlendis og Rúna Einarsdóttir - og hún kynnti Orra frá Þúfu til sögunnar, frægasta kynbótahest Íslands. Rúna lifði í vellystingum á glæsilegum hestabúgarði í Þýskalandi og engin lát virtust vera á velgengninni. En hér segir ekki einungis frá sigrum Rúnu heldur líka konunni á bak við glansmyndina, einsemd hennar og sorgum, konunni sem á tímabili fannst eins og öll sund væru lokuð. Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar örlagasögu stúlkunnar sem ólst upp í fásinni og náttúrufegurð í Svínadal í Húnavatnssýslu, konunnar sem náði hæstu hæðum glæsilífs - en líka dýpstu dölum tilverunnar.  

Hestamenn Hestamennska Konur Rúna Einarsdóttir 1965 Ævisögur