Skoða bók

Marrið í stiganum

Eva Björg Ægisdóttir  

Sara Friðgeirsdóttir  

1  

11:46 klst.  

2018  

Ung kona finnst myrt í fjörunni við Akranes. Hin látna reynist hafa búið sem barn í bænum en flutti skyndilega burt ásamt móður sinni. Lögreglukonan Elma, sem er nýflutt á Skagann, rannsakar málið ásamt samstarfsmönnum sínum. Upp á yfirborðið koma ýmis skuggaleg mál úr fortíðinni en Elma þarf líka að takast á við atburði í eigin lífi sem hröktu hana aftur heim á æskuslóðirnar. Marrið í stiganum er fyrsta bók Evu Bjargar Ægisdóttur og bar handrit hennar sigur úr býtum í samkeppninni um Svartfuglinn, glæpasagnaverðlaun sem Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson stofnuðu til í samvinnu við Veröld.  

Glæpasögur Lögreglukonur Norrænar spennusögur Skáldsögur Spennusögur Íslenskar bókmenntir