Skoða bók

Lífsnautnin frjóa

Ragde, Anne Birkefeldt, 1957-  

Silja Aðalsteinsdóttir  

Silja Aðalsteinsdóttir  

Berlínaraspirnar  

10:44 klst.  

2018  

Torunn fer að vinna hjá Margido föðurbróður sínum og læra útfararstjórn, honum til mikillar gleði. Á sama tíma er hún að gera upp gamla húsið á Neshov. Tormod gamli, maðurinn sem hún kallar afa, er ánægður á hjúkrunarheimilinu en varnarlaus gegn minningunum sem sækja að honum og þverneitar að heimsækja Torunni. Á Neshov lifði hann djúpa niðurlægingu og vill aldrei sjá þann stað aftur. Í Kaupmannahöfn er Erlend líka að gera upp hús; hann sér um endurreisn æskuheimilis Krumme þar sem þeir ætla að setjast að með börnunum sínum þremur og barnsmæðrum. Lífsnautnin frjóa er fimmta bókin í fjölskyldusögunni sem hófst í Berlínaröspunum og vinsæl sjónvarpsþáttaröð var gerð eftir. Anne B. Ragde er einn mesti metsöluhöfundur Norðmanna og bækur hennar njóta vinsælda víða um heim.  

Fjölskyldusögur Norskar bókmenntir Skáldsögur Þýðingar úr norsku