Skoða bók

Dansað í Ódessa

Kaminsky, Ilya  

Sigurður Pálsson   Sölvi Björn Sigurðsson  

Sigurður H. Pálsson  

01:01 klst.  

2018  

Dansað í Ódessa eftir rússnesk-bandaríska skáldið Ilya Kaminsky var síðasta verkið sem Sigurður Pálsson vann að, en auðnaðist ekki að ljúka þrátt fyrir ómælda elju allt til hinsta dags. Þetta er óvenjuleg og tilfinningarík ljóðabók um töfraheima jafnt sem harðneskju bernskuáranna. Verk sem hefur hlotið mikið lof og fjölda verðlauna. Meðan Sigurður vann að þýðingunni var eftirfarandi haft eftir honum: "Fyrir fimmtíu árum kynntist ég nýju stórskáldi á hálfs mánaðar fresti, flest þeirra hafa verið ferðafélagar mínir æ síðan. Hin síðari ár hefur þeim fækkað sem ég uppgötva en þeim mun stórkostlegri er tilfinningin að uppgötva stórskáld. Fyrir fimm árum kynntist ég einu slíku á ljóðlistarþingi, hann heitir Ilya Kaminsky. Fæddur í Úkraínu, flutti barn að aldri með fjölskyldunni til Bandaríkjanna og skrifar á ensku. Ég er að þýða ljóðabók hans Dansað í Ódessa." Þegar ljóst varð að lítið vantaði upp á til að klára bókina til útgáfu, kom Sölvi Björn Sigurðsson að verkinu, þýddi það sem út af stóð og ritaði formála.  

Ljóð Úkraínskar bókmenntir Þýdd skáldverk