Skoða bók
Létta leiðin til að hætta reykingum
05:02 klst.
1993
Allen Carr reykti í 33 ár, frá 60 og upp í 100 sígarettur á dag. Hann reyndi ótal sinnum að hætta, með ýmsum aðferðum, en mistókst alltaf. 1981 uppgötvaði hann þá aðferð sem dugði og tókst loksins að hætta. Það var hlægilega auðvelt fyrir hann, og fyllti hann strax ótúlegri gleði og stolti. Næstu árin þróaði hann þessa byltingakenndu aðferð sína á hundruðum námskeiða með reykingamönnum. Aðferð Allen Carr er nú notuð um allan heim, á meira en 20 tungumálum, og hefur nú þegar frelsað miljónir manna frá reykingum, auðveldlega og átakalaust. Aðferð Allen Carr færir þér leiðarvísi út úr þessu flókna völundarhúsi, opinberar þér hvers vegna þú reykir, hvers vegna það hefur hingað til verið svona erfitt að hætta og hvernig þú getur nú auðveldlega hætt að reykja, varanlega og þarft aldrei að hafa áhyggjur af þessu framar.
Heilsufar Heilsufræði Reykingar Sjálfshjálp Tóbak Tóbaksfíkn Tóbaksvarnir