Skoða bók

Wow : Ris og fall flugfélags

Stefán Einar Stefánsson  

Sigurður H. Pálsson  

08:53 klst.  

2019  

WOW air hafði mótandi áhrif á íslenskt samfélag í þau sjö ár sem félagið starfaði. Undir lokin var það orðið afar umsvifamikið og svo stórt að margir töldu að það mætti ekki verða gjaldþrota. Þann 28. mars 2019 stöðvaðist starfsemin þó endanlega eftir margra mánaða hildarleik. Í þessari fróðlegu bók varpar Stefán Einar Stefánsson blaðamaður ljósi á áður óþekktar ástæður þess að félagið varð gjaldþrota en einnig það hvernig Skúla Mogensen, stofnanda þess, tókst á örfáum árum að byggja upp flugfélag sem hafði áður en yfir lauk flutt tíu milljónir farþega yfir Atlantshafið. WOW - ris og fall flugfélags er mögnuð bók þar sem rakið er eitt merkilegasta viðskiptaævintýri Íslandssögunnar. Ævintýrið snerist upp í andhverfu sína og þeirri atburðarás er hér lýst af innsæi og einstakri þekkingu á flóknum heimi flugreksturs.  

Flug Flugfélög Flugrekstur Flugsaga Gjaldþrot Skúli Morgensen Viðskipti Wow air Ísland