Skoða bók

1793

Natt och Dag, Niklas  

Hilmar Hilmarsson  

Karl Emil Gunnarsson  

1793  

12:41 klst.  

2019  

Á myrkri haustnótt árið 1793 dregur vaktarinn Mickel Cardell karlmannslík upp úr forarpolli í Stokkhólmi. Það er skelfilega leikið - hvorki með hendur né fætur en gróið fyrir stúfana. Einhver hefur haldið manninum föngnum og aflimað hann smátt og smátt. Cardell og berklaveiki lögfræðingurinn Cecil Winge hefja leit að hinum seka og komast brátt að því að undirferli, mannvonsku og kvalalosta er ekki aðeins að finna í aumustu hreysum borgarinnar heldur einnig á bak við glæstar framhliðar stórhýsanna. En tíminn er naumur... Saman við þetta fléttast nöturleg frásögn ungs spjátrungs á hraðri leið til glötunar og saklausrar stúlku sem örlögin hafa hrakið út á ystu nöf. 1793 er fyrsta skáldsaga Niklas Natt och Dag, sem er af ævafornri sænskri aðalsætt, og hlaut hún verðlaun Sænsku glæpasagnasamtakanna sem besta frumraunin 2017.  

18.öld Glæpasögur Norrænar spennusögur Sakamálasögur Skáldsögur Spennusögur Stokkhólmur Sænskar bókmenntir Sögulegar skáldsögur Þýðingar úr sænsku