Skoða bók

Á hálum ís

Bates, Quentin  

Jón Þ. Þór  

Margrét Örnólfsdóttir  

Gunnhildar-serían  

09:50 klst.  

2019  

Tveir smákrimmar ræna einn stærsta eiturlyfjasalann í Reykjavík. Þeir höfðu lagt á ráðin um að komast fljótt til sólarlanda með ránsfenginn sem er há fjárhæð í evru-seðlum. En allar ráðagerðir fara út í veður og vind þegar flóttabíllinn kemur ekki á tilsettum tíma. Þeir ræna í staðinn bíl tveggja kvenna og neyða konurnar til að fara með sér út í sveit. Þar fara þeir í felur á afskekktu sveitahóteli sem er lokað yfir veturinn. Það kyngir niður snjó og spennan magnast á hótelinu meðan krimmarnir leggja á ráðin um næstu skref. Yfir þeim vofir hrottafengin hefnd eiturlyfjasalans og leit lögreglunnar að mannræningjum kvennanna. Í hönd fer æsileg atburðarás með kómísku ívafi og óvæntum uppákomum. Rannsóknarlögreglumaðurinn Gunnhildur Gísladóttir og aðstoðarmenn hennar í lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu rannsaka hvarf kvennanna.  

Breskar bókmenntir Glæpasögur Gunnhildur Gísladóttir (sögupersóna) Lögreglukonur Sakamálasögur Skáldsögur Spennusögur Ísland Þýðingar úr ensku