Skoða bók

Sú sem varð að deyja

Lagercrantz, David  

Halla Kjartansdóttir  

Þórunn Hjartardóttir  

Millennium-bækurnar  

11:01 klst.  

2019  

Lisbeth Salander mun ekki híma í fylgsni sínu sem hundelt bráð. Hún hefur látið sig hverfa og af henni finnst hvorki tangur né tetur. Enginn veit að nú loksins hefur hún í sjónmáli tvíburasystur sína og glæpasamtökin sem faðir hennar stofnaði. Mikael Blomkvist leitar til Salander svo að hann geti borið kennsl á útigangsmann sem lifði og dó á götum Stokkhólmsborgar. Maðurinn finnst hvergi í kerfinu og hinstu orð hans voru óljóst muldur sem gæti skaðað valdamenn á æðstu stöðum, en í úlpuvasa hans fannst miði með símanúmeri Mikaels. Enn á ný snúa Salander og Blomkvist bökum saman en glíma við sitthvort málið: hann að fletta ofan af spillingu í sænska stjórnkerfinu og hún að særa burt drauga fortíðar og gamlar syndir. Sú sem varð að deyja er síðasta bókin sem David Lagercrantz skrifar um sagnaheiminn sem Stieg Larsson skapaði.  

Glæpasögur Lisbeth Salander (skálduð persóna) Mikael Blomkvist (skálduð persóna) Sakamálasögur Skáldsögur Spennusögur Sænskar bókmenntir Þýðingar úr sænsku