Slökkt verður á eldra appi safnsins 14. apríl

Áfram verður hægt að hlusta á bækur hér á vefnum.

Smelltu hér til að ná í nýja appið

Skoða bók

Ungfrú fótbolti

Brynhildur Þórarinsdóttir  

Gríma Kristjánsdóttir  

07:51 klst.  

2019  

Vinkonurnar Gerða og Ninna eru alveg fótboltaóðar. Götuboltaliðið æfir þrotlaust og stelpurnar eru stórhuga, þær vilja keppa á alvöru velli eins og strákarnir. En þá þarf að taka slaginn við samfélag sem hefur mjög skýrar hugmyndir um hvað 13 ára stelpur mega gera. Ungfrú fótbolti er bráðskemmtileg baráttusaga sem gerist innan um hálfbyggðu húsin í Breiðholtinu 1980, sumarið sem Vigdís Finnbogadóttir skoraði hefðirnar á hólm og bauð sig fram til forseta. Brynhildur Þórarinsdóttir hefur meðal annars hlotið Norrænu barnabókaverðlaunin fyrir endursagnir sínar á Íslendingasögum og Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir Leyndardóm ljónsins. Hún ólst upp í Breiðholtinu.  

Barna- og unglingabækur Fótbolti Knattspyrna Kvennaknattspyrna Stelpur Vinkonur Íslenskar bókmenntir Íþróttir