Skoða bók

Brot : konur sem þorðu

Dóra S. Bjarnason  

Ásdís Thoroddsen  

09:08 klst.  

2019  

Saga um lífshlaup þriggja kynslóða kvenna; þeirra Adeline, Ingibjargar og Veru. Líf mæðgnanna spannar 137 ár, frá 1867 til 2004, tímabil stórkostlegra breytinga á nánast öllum sviðum. Þessar þrjár konur voru, hver á sinn hátt, frumkvöðlar í baráttu kvenna fyrir frelsi og jafnrétti; gáfaðar, lærðar og sigldu oftast á móti straumnum. Adeline var einna fyrst kvenna til að gegna kennarastöðu í evrópskum háskóla, Ingibjörg var listmálari og sýndi verk sín í samfloti með Mondrian í París, en flutti síðan með dóttur sína til Reykjavíkur þar sem hún var snyrtivöruframleiðandi á árunum 1933 til 1939, þegar þær mæðgur fluttu til Buenos Aíres. Vera dóttir hennar var einnig listmálari, kennari og þerapisti áður en leiðir hennar og bókarhöfundar lágu saman í Tórínó á Ítalíu. Saga kvennanna er listilega sögð og heimildirnar af ýmsum toga, meðal annars tilfinningaþrungin bréf og dagbækur.  

Argentina Frakkland Kennarar Konur Kynslóðasögur Listmálarar Sviss Æviþættir Ísland Ítalía Þerapistar Þýskaland