Skoða bók
Útkall : íslenska neyðarlínan
2
06:16 klst.
1995
Í bókinni Útkall íslenska neyðarlínan segja björgunarmenn og þeir sem bjargað var úr lífsháska frá reynslu sinni. Höfundurinn hefur að mestu leyti spunnið frásagnirnar saman í fyrstu persónu. Í einni frásögn bókarinnar er því lýst er hjón hröpuðu með vélsleða 20 metra niður í hyldýpissprungu á Snæfellsjökli. Þar koma við sögu slysavarnafélagsmenn, aðrir björgunarmenn og læknir sem þurfti að síga í jökulsprungu, án þess að hafa nokkru sinni gert slíkt áður, til að hlúa að limlestum manninum. Þessi frásögn var valin af þekktasta sjónvarpsþætti sinnar tegundar í heiminum, Rescue 911, til kvikmyndunar hér á landi. Einnig er fjallað um ms. Tungufoss, sem sökk í tólf vindstigum út af Lands End á Bretlandi og djörfustu flugferð ársins 1994 þegar Bandaríkjamenn björguðu áhöfn Goðans í fárviðri í Vöðlavík.
Björgunarafrek Björgunarmál Björgunarsveitamenn Neyðarlínan Sannsögulegt Slys Snæfellsnes Vélsleðar Vöðlavík Íslandssaga