Skoða bók

Daði

Sigga Dögg  

Sigga Dögg  

04:35 klst.  

2019  

Sagan um Daða fjallar um ungan gaur sem glímir við ástina, ástarsorg, sjálfsmyndina og gredduna. Daði spilar sig svalan fyrir félögunum og stelpunni sem hann er skotinn í en undir yfirborðinu krauma mótsagnakenndar tilfinningar sem Daði reynir að átta sig á og vinna úr. Við þessa úrvinnslu fer Daði í ítarlega naflaskoðun sem leiðir hann í tímaferðalag um eigin kynþroska, rúnkdagbækurnar og kynfræðslukvöldum mömmu sinnar. Bókin byggir á algengum spurningum og umræðum drengja úr kynfræðslu Siggu Daggar kynfræðings um land allt undanfarin tíu ár. Það er algengt að nota dæmisögur í kynfræðslu en hér er það form tekið lengra. Hér tvinnar höfundur saman raunveruleika íslenskra drengja og kynfræðslu í eina sögu þar sem lesandinn nær að spegla sig í persónunum en einnig að fræðast um tilfinningar, samskipti, kynhneigð, og eigin kynveru. Daði er sjálfstætt framhald bókarinnar kynVeru, sem kom út árið 2018.  

Barna- og unglingabækur Kynfræðsla Kynlíf Kynvitund Kynþroski Sambönd Sjálfsfróun Skáldsögur Strákar Unglingar Ungmenni