Uppfært app fyrir iPhone - Vinsamlegast uppfæra

Við erum komin með nýja útgáfu af appinu okkar fyrir iPhone.
Vinsamlegast smella hér og uppfæra appið.

Skoða bók

Danskvæði um söngfugla og slöngur

Collins, Suzanne  

Magnea J. Matthíasdóttir  

Margrét Örnólfsdóttir  

19:06 klst.  

2020  

Það er sláttudagur í Panem - tíundu Hungurleikarnir eru að hefjast. Hinn átján ára Kóríolanus Snow býr sig undir hlutverk sem getur gjörbreytt framtíð hans og Snow-ættarinnar. Hún hefur glatað fyrri völdum og áhrifum og nú veltur allt á því að honum takist að heilla Panem-búa, leika á skólafélaga sína og stýra framlagi sínu til sigurs í Hungurleikunum. Líkurnar eru honum ekki í hag því að hann hefur fengið það niðurlægjandi hlutverk að leiðsegja stúlkunni úr tólfta umdæmi. En örlög þeirra eru samtvinnuð - sérhver ákvörðun sem Kóríolanus tekur getur leitt til sigurs eða glötunar. Inni á leikvanginum verður barist til síðasta blóðdropa. Kóríolanus áttar sig smám saman á því að honum stendur ekki á sama um stúlkuna - Hann þarf að velja ... á hann að fylgja reglunum eða gera það sem þarf til að hún lifi af?  

Bandarískar bókmenntir Fantasíur Skáldsögur Ungmennabækur Ungmenni Vísindaskáldsögur Þýðingar úr ensku