Skoða bók
Draugsól
Kjartan Yngvi Björnsson Snæbjörn Brynjarsson
4
17:12 klst.
2018
Það hriktir í stoðum heimanna er innsiglin hverfa eitt af öðru og máttur Skugganna vex... Vetur er skollinn á. Langt í norðri berjast Janarnir fyrir lífi sínu - hreindýrahjarðirnar týndar og vistir á þrotum. Í austri skelfur jörðin undan stærsta her sem heimurinn hefur séð og með honum ríður úlfariddarinn Breki, tilbúinn að berjast í nafni Temúls Bataars. Í suðri, í gróðursælum hlíðum Verdys, hlýtur Sirja þjálfun í listum sverðameistaranna og uppgötvar leyndardóma ófreskisins. Hjá forna vitringnum Kymros lærði Ragnar að beisla mátt sinn áður en hann sneri bakinu við lærimeistara sínum. Nú liggja tættar líkamsleifar hans undir rústum hins svarta turns og senn mun draugsól rísa...
Barna- og unglingabækur Fantasíur (bókmenntir) Furðusögur Skáldsögur Ungmennabækur Ungmenni Íslenskar bókmenntir