Slökkt verður á eldra appi safnsins 14. apríl

Áfram verður hægt að hlusta á bækur hér á vefnum.

Smelltu hér til að ná í nýja appið

Skoða bók

Barnaræninginn

Gunnar Helgason  

Gunnar Helgason  

Hafnarland  

05:23 klst.  

2020  

Eftir hallarbyltinguna í Hafnarlandi ríkir friður og ró. En brátt logar allt í ófriði og Barnaræninginn er aftur farinn að ræna börnum. Nú eru það börnin á Matarfjallinu sem lenda í klónum á honum. Eyrdís verður að gera eitthvað í málunum því að ástandið er henni að kenna. Hún verður að stoppa Barnaræningjann þó að það gæti orðið hennar bani! Barnaræninginn er fyndin og æsispennandi, rétt eins og Draumaþjófurinn, fyrri bókin um rotturnar í Hafnarlandi sem naut mikilla vinsælda og var tilnefnd til Barnabókaverðlauna Reykjavíkur. Gunnar Helgason hefur sent frá sér fjölda gríðarvinsælla barnabóka. Fyrir Mömmu klikk! hlaut hann Íslensku bókmenntaverðlaunin og Bókaverðlaun barnanna hafa sex sinnum fallið honum í skaut.  

Barnabókmenntir (skáldverk) Dýrasögur Skáldsögur Íslenskar bókmenntir