Skoða bók
Blóðberg
05:03 klst.
2020
Árið 1608 sver ung stúlka í Skagafirði, Þórdís Halldórsdóttir, eið um að hún sé hrein mey eftir að upp kemur kvittur um ástarsamband hennar við mág sinn en slíkt var dauðasök á tímum stóradóms. Fimm mánuðum síðar fæðir hún barn. Þórdís má lifa með ásökunum um blóðskömm og í trássi við landslög er henni gert að sæta pyntingum segi hún ekki til barnsföður síns. Á hverju ári ríður hún suður heiðar til að mæta fyrir Alþingi á Þingvöllum en heill áratugur líður þar til dómur er kveðinn upp. Þóra Karítas Árnadóttir hefur starfað við skrif, leikhús og sjónvarpsþáttagerð. Árið 2015 sendi hún frá sér sannsöguna Mörk - saga mömmu sem hlaut góðar viðtökur lesenda. Blóðberg er fyrsta skáldsaga hennar.
Aftökur Blóðskömm Drekkingarhylur Konur Sakamál Skáldsögur Sögulegar skáldsögur Ísland Íslenskar bókmenntir Þórdís Halldórsdóttir (d. 1618)