Slökkt verður á eldra appi safnsins 14. apríl

Áfram verður hægt að hlusta á bækur hér á vefnum.

Smelltu hér til að ná í nýja appið

Skoða bók

Útkall : á ögurstundu

Óttar Sveinsson  

Hannes Óli Ágústsson  

Útkall  

27 

06:03 klst.  

2020  

Þegar jörð skelfur, eldstrókar rísa með hvellum og drunum og fimm þúsund manns eru í stórhættu við upphaf eldgossins á Heimaey siglir Gjafar VE 300, lítill loðnubátur, út úr Friðarhöfn með 430 manns. Þrengslin um borð eru gríðarleg. Þremur vikum síðar lendir áhöfnin í mannskaðaveðri við leit að fimm Íslendingum og fimm Færeyingum í gúmbjörgunarbátum sem saknað er á miðju Atlantshafi. Réttum mánuði eftir að eldgosið hófst strandar Gjafar í foráttubrimi fyrir utan Grindavík. Skipverjar berjast upp á líf og dauða meðan hugrakkir félagar í Björgunarsveitinni Þorbirni reyna að bjarga þeim. Hinn farsæli útgerðarmaður og vélstjóri Theodór Ólafsson lendir þarna í sínum þriðja skipskaða. Skipverjar og björgunarmenn segja frá hetjulegri baráttu. Árið 1984 lenda Theodór og 14 manna áhöfn hans á Sæbjörgu VE 56 aftur í stórkostlegri lífshættu þegar hún verður vélarvana í óveðri við Hornafjörð. Báturinn nálgast hratt ógnarlegt brimið í klettunum og stórgrýtinu á Stokksnesi og Hafnartanga áður en hann strandar. Björgunarsveitarmenn á Höfn lýsa ótta sínum um að öll áhöfnin kynni að farast og stórkostlegri framgöngu við björgunarstörf Útkallsbækur Óttars Sveinssonar hafa á hverju ári frá 1994 verið eitthvert vinsælasta lesefni Íslendinga og þær hafa verið gefnar út víða um heim. Í þessum hörkuspennandi bókum gleyma lesendur sér í frásögnum þar sem höfundurinn og söguhetjurnar sjálfar lýsa sönnum atburðum úr íslenskum raunveruleika.  

Björgunarmál Björgunarsveitin Þorbjörn Gjafar VE 300 Mannskaðaveður Sjómenn Sjóslys Skipsskaðar Sæbjörg VE 56 Theodór S. Ólafsson 1933-2020 Vestmannaeyjagosið Vestmannaeyjar