Skoða bók

Truflunin

Steinar Bragi  

Margrét Örnólfsdóttir  

10:04 klst.  

2020  

Árið er 2034. Heimurinn hefur kvíslast í tvær víddir sem einungis snertast á litlu svæði í miðbæ Reykjavíkur, Trufluninni. Múr umlykur svæðið og inn fyrir hann fer einungis þrautþjálfað vísindafólk og hermenn, svokallaðir agentar. Einn þeirra er félagssálfræðingurinn Halla, sem hefur sérhæft sig í geimverum og sértrúarsöfnuðum og brennt allar brýr að baki sér í einkalífinu. Verkefni hennar er að hafa uppi á agentinum F sem sendi frá sér torrætt neyðarkall áður en hún hvarf sporlaust. Steinar Bragi sendi síðast frá sér smásagnasafnið Allt fer sem tilnefnt var til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Fyrir skáldsöguna Konur var hann tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og verk hans hafa komið út á yfir tuttugu tungumálum. Truflunin er grípandi framtíðartryllir sem á fáa sína líka.  

Framtíðarsögur Skáldsögur Íslenskar bókmenntir