Skoða bók

Eldarnir

Sigríður Hagalín Björnsdóttir  

Sunna Björk Þórarinsdóttir  

08:53 klst.  

2021  

Skáldin mega hjala um ástina, en ég þekki hana, hef séð hana að verki. Hún er ekkert annað en náttúruhamfarir. Jarðskjálftar skekja Reykjanesskaga, eldfjöllin eru vöknuð til lífsins eftir 800 ára hlé. Enginn þekkir þau betur en eldfjallafræðingurinn Anna Arnardóttir, forstöðumaður Jarðvísindastofnunar, sem þarf að takast á við stærsta verkefni ferilsins við stjórn almannavarna. En áferðarfallegt og hamingjuríkt líf hennar lætur ekki lengur að stjórn. Eldarnir eru þriðja skáldsaga Sigríðar Hagalín Björnsdóttur. Fyrri bækur hennar, Eyland og Hið heilaga orð, hafa vakið verðskuldaða athygli og verið þýddar á fjölda tungumála.  

Jarðfræðingar Skáldsögur Ástarsambönd Ástarsögur Íslenskar bókmenntir