Skoða bók
Náðu tökum á þyngdinni með hugrænni atferlismeðferð
04:32 klst.
2021
Ertu í stöðugri baráttu við aukakílóin? Sveiflastu milli þess að halda í við þig og missa tökin á mataræðinu? Fyllistu vonleysi þegar þú ferð aftur í sama farið? Fjölmargir eru í þessum sporum þrátt fyrir dugnað og löngun til að grennast. Í samfélaginu er hvatt til síaukinnar neyslu sem kemur sér illa því ásóknin í orkuríka fæðu er okkur eðlislæg. Þessi þörf magnast þegar við neitum okkur um mat í þeim tilgangi að grennast. Með hugrænni atferlismeðferð má rjúfa vítahring megrunar og stjórnleysis með því að tileinka sér hugarfar og venjur sem markast af skilningi á þörfum líkamans. Það stuðlar að betri þyngdarstjórn, meiri vellíðan og sátt við eigin líkama. Hugarfarið er gleymda vopnið í baráttunni en jafnframt það öflugasta.
Hreyfing Hugræn atferlismeðferð Lífshættir Mataræði Megrun Offita Sjálfsrækt