Skoða bók

Færðu mér stjörnurnar

Moyes, Jojo  

Herdís Magnea Hübner  

Berglind Steinsdóttir  

13:56 klst.  

2021  

Árið 1937 hittir Alice hinn unga, myndarlega og auðuga Bandaríkjamann Bennett og ákveður að giftast honum og yfirgefa heimaland sitt, England. Hún flytur til Kentucky þar sem hennar bíður óvæntur og erfiður veruleiki. Hin brennandi ást milli hjónanna verður smám saman að gagnkvæmri andúð og það er ekki fyrr en Alice kynnist Margery og fleiri konum að gleðin kemur aftur inn í líf hennar. Þegar hinn auðugi og valdamikli tengdafaðir hennar snýst gegn konunum er frelsi þeirra og líf skyndilega í hættu. Ógleymanleg saga um vináttu og samvinnu hugrakkra kvenna sem þurfa að berjast gegn eitruðu ægivaldi auðs, kvenfyrirlitningar og haturs. Jojo Moyes er einn vinsælasti rithöfundur Bretlands og hafa rúmlega 38 milljónir eintaka af bókum hennar selst um allan heim.  

Breskar bókmenntir Konur Skáldsögur Ástarsögur Þýðingar úr ensku