Skoða bók

Grunur

Audrain, Ashley  

Ragna Sigurðardóttir  

Þórunn Hjartardóttir  

08:30 klst.  

2021  

Grunur er mögnuð og taugatrekkjandi skáldsaga um martröð hverrar móður - að geta ekki elskað barnið sitt. Og um líðan konu sem enginn trúir. Þegar Blythe eignast dóttur er hún staðráðin í að veita henni alla þá ást og hlýju sem hún fór sjálf á mis við í bernsku. En í þreytuþokunni fyrstu mánuðina eftir fæðinguna sannfærist hún um að eitthvað sé afbrigðilegt við hegðun dótturinnar - hún sé ekki eins og önnur börn. Eða er það hún sjálf sem eitthvað er að? Manninum hennar finnst hún vera ímyndunarveik og með tímanum fer hún að efast æ meira um dómgreind sína og geðheilsu. Er ættgengt að vera óhæf móðir? Blythe er alltaf á nálum um að eitthvað hræðilegt gerist. Daginn sem það gerist verður óbærilegur grunur að ískaldri vissu. Þessi fyrsta bók kanadíska rithöfundarins Ashley Audrain kom út í ársbyrjun 2021, sló strax í gegn og komst á fjölda metsölulista.  

Kanadískar bókmenntir Skáldsögur Spennusögur Þýðingar úr ensku