Skoða bók

Sjálfsævisaga Alice B. Toklas

Stein, Gertrude  

Tinna Björk Ómarsdóttir  

Helga Elínborg Jónsdóttir  

Sígild samtímaverk  

12:02 klst.  

2021  

Sígilt samtímaverk eftir móður módernismans. Í upphafi tuttugustu aldar flykktust sjálfskipaðir snillingar til Parísar og stóðu fyrir innreið nútímans í listum. Allir söfnuðust þeir saman á vinnustofu Gertrude Stein. Þar sáust listmálarar á borð við Picasso, Matisse og Cézanne, bæði á veggjum og í eigin persónu, og rithöfundar eins og Hemingway, Fitzgerald og margir fleiri. Í þessari einstöku sjálfsævisögu segir Gertrude Stein frá þessum tíma á óborganlegan hátt frá sjónarhorni ástkonu sinnar, Alice B. Toklas. Gertrude Stein (1874-1946) vildi skapa nýstárlegar bókmenntir í líkingu við það sem kúbistarnir gerðu í málverkum sínum. Hún er þekkt fyrir óvenjulegan ritstíl sem einkenndist af einfaldri orðanotkun og óvenjulegri setningabyggingu með fáum greinarmerkjum. Sjálfsævisaga Alice B. Toklas er vinsælasta og jafnframt aðgengilegasta verk hennar.  

20. öldin Frakkland Fyrri heimsstyrjöld Konur Listamenn París Rithöfundar Sjálfsævisögur Skáldkonur Skáldævisögur Sígildar bókmenntir Ævisögur Þýðingar úr ensku