Skoða bók

Ást

Palomas, Alejandro  

Sigrún Ástríður Eiríksdóttir  

María Lovísa Guðjónsdóttir  

10:10 klst.  

2021  

24 tímar, brúðkaup, fjölskylda, allt er í stakasta lagi. Síminn hringir og allt fer úrskeiðis. Lífið byrjar. Ást er tilfinningaþrungin og gáskafull saga sem fangar hug lesenda sinna. Persónurnar eru fjölbreyttar og litríkar og Alejandro Palomas lýsir tilfinningum þeirra og eiginleikum af næmu innsæi. Sagan er sjálfstætt framhald af Móðir og Hundur. Hjá hinni uppátækjasömu Amalíu og börnunum hennar þremur, þeim Silvíu, Emmu og Fer, sveiflast lífið í takt við hæðir og lægðir tilfinninganna. Á ýmsu hefur gengið að undanförnu en nú hefur fjölskyldan ástæðu til að fagna. Brúðkaup Emmu er framundan og allt snýst um að skipuleggja og undirbúa það af kostgæfni. Afmæli Amalíu ber upp á sjálfan brúðkaupsdaginn svo að fjölskyldan hefur tvöfalt tilefni til að gleðjast. Kvöldið fyrir veisluhöldin hringir síminn og setur allt úr skorðum. Systkinin þrjú og Ines frænka koma sér saman um að láta ekkert spilla gleðinni og í garð gengur viðburðaríkur sólarhringur sem reynir á þau öll bæði sem einstaklinga og fjölskyldu.  

Skáldsögur Spænskar bókmenntir Þýðingar úr spænsku