Skoða bók

Nágrannavarsla

Lindell, Unni  

Snjólaug Bragadóttir  

Birgitta Birgisdóttir  

10:06 klst.  

2022  

Hvaða hættur kunna að leynast í garði nágranna þíns? Er einhver í húsinu við hliðina sem á að standa autt? Sonja Jansen er ein heima að lesa undir próf. Hún hefur tekið að sér að vökva fyrir nágrannann í rólegu úthverfi. Hún verður vör við umgang í húsinu og hringir í lögregluna. Lögreglumaðurinn Lydia Winther, sem kölluð er Snö, kemur á vettvang ásamt félaga sínum. Þær verða ekki varar við neitt grunsamlegt sem gefur tilefni til að aðhafast og hverfa á braut. En Snö finnur innra með sér að ekki er allt með felldu. Nokkru síðar snýr hún aftur en þá er Sonja horfin. Þegar Snö hefur leitina að Sonju fléttast gamalt fjölskylduleyndarmál inn í málið sem smám saman verður ógnvænlegra og teygir anga sína inn í norska olíuiðnaðinn. UNNI LINDELL er sannkölluð glæpasagnadrottning Noregs. Hún hefur tvívegis hreppt hin virtu Riverton-verðlaun í Noregi og vinsælar sjónvarpsmyndir hafa verið gerðar eftir sögum hennar sem m.a. hafa verið sýndar á RÚV.  

Norrænar spennusögur Norskar bókmenntir Sakamálasögur Skáldsögur Þýðingar úr norsku