Skoða bók
Skólaslit
1
04:44 klst.
2022
Skólaslit er hrollvekja eftir Ævar Þór Benediktsson sem lesendur munu tæta í sig. Sagan birtist fyrst sem ógnvekjandi hrekkjavökudagatal en kemur nú út í bókarformi - lengri og ógeðslegri en áður - með myndlýsingum eftir Ara H.G. Yates. Það er 31. október. Hrekkjavaka. Allir veggir skólans eru þaktir skrauti sem vekur hroll og kitlar ótta. Í fjarska ómar ómennskt öskur. Á gólfinu má sjá hálfan íþróttakennara og handan við hornið heyrist í draghöltum uppvakningaher. Hvað í ósköpunum gerðist? Og hvernig geta krakkarnir sem enn eru ekki orðnir að skrímslum komist lifandi út úr skólanum?
Barnabókmenntir Hrollvekjur Ungmennabækur Ungmennabókmenntir (skáldrit) Íslenskar barna- og unglingabækur Íslenskar bókmenntir