Skoða bók
Leyniviðauki 4
3
09:03 klst.
2022
Hrottalegt morð er framið í bandarísku herstöðinni á Miðnesheiði. Íslenskur verkfræðingur á miðjum aldri situr í haldi lögreglunnar, grunaður um verknaðinn. Þá kemur til kasta Stefáns hæstaréttarlögmanns sem þarf að takast á við óvenjulegar flækjur þar sem Bandaríkjamenn krefjast þess að fá forræði málsins og hafa í hótunum um brottflutning Varnarliðsins. En Stefán stýrir vörninni af þeirri festu og öryggi sem hann er kunnur af, þótt öllu minna fari fyrir stöðuglyndinu í einkalífinu. Leyniviðauki 4 er þriðja bókin um Stefán Bjarnason verjanda, sem er hörkutól í dómssal en eins og leir í höndum fagurra fljóða. Þetta er spennandi og ófyrirsjáanlegt sakamáladrama kryddað kerskni og hárbeittu háði.
Glæpasögur Norrænar spennusögur Sakamálasögur Skáldsögur Spennusögur Íslenskar bókmenntir