Sumarlokun

Hljóðbókasafn Íslands lokar frá 15. júlí til 6. ágúst. Lokað er fyrir pöntun diska á þessu tímabili en við bendum á að áfram er opið fyrir niðurhal og streymi til skráðra lánþega safnsins.

Skoða bók

Dauðinn á opnu húsi

De la Motte, Anders   Nilsson, Måns  

Nanna Brynhildur Þórsdóttir  

Kristján Franklín Magnús  

Österlen-morðin  

10:47 klst.  

2022  

Þegar Jessie Anderson, fasteignasali og áhrifavaldur, finnst myrt á opnu húsi er hinn ferkantaði rannsóknarlögreglumaður Peter Vinston frá Stokkhólmi fenginn til að rannsaka morðið. Honum til aðstoðar er Tove Esping, óreynd en metnaðarfull sveitalögga, sem er staðráðin í að láta Vinston ekki valta yfir sig. En þrátt fyrir árekstra bindast þau smám saman vináttuböndum í leit sinni að sannleikanum. Í einhverju fallegu húsanna í ljúfri sveitasælunni á Skáni leynist kaldrifjaður morðingi. Spurningin er bara: Hver er það? Dauðinn á opnu húsi er fyrsta sagan í bókaflokknum um Österlen-morðin eftir sænska tvíeykið Anders de la Motte og Måns Nilsson. De la Motte er fyrrverandi lögreglumaður og einn ástsælasti glæpasagnahöfundur Svía og Nilsson er handritshöfundur, grínisti og barnabókahöfundur.  

Glæpasögur Kósíkrimmar Norrænar spennusögur Sakamálasögur Skáldsögur Spennusögur Sænskar bókmenntir Þýðingar úr sænsku