Sumarlokun

Hljóðbókasafn Íslands lokar frá 15. júlí til 6. ágúst. Lokað er fyrir pöntun diska á þessu tímabili en við bendum á að áfram er opið fyrir niðurhal og streymi til skráðra lánþega safnsins.

Skoða bók

Grátvíðir

Fífa Larsen  

Arna Björk Jónsdóttir  

08:21 klst.  

2023  

Jóhanna, íslensk kona búsett á Norður-Ítalíu, lifir einföldu og kyrrlátu lífi ásamt syni sínum og ítölskum tengdaföður. Dag nokkurn ber að garði lögreglumanninn Roberto Farro sem rannsakar lát konu þar í grenndinni - hann hefur engar vísbendingar aðrar en að símanúmer Jóhönnu finnst hjá hinni látnu. Hver er þessi kona og hvernig tengist hún Jóhönnu? Jóhanna dregst þannig ófús inn í rannsókn málsins sem berst um Ítalíu endilanga og allt til Sikileyjar. Fyrr en varir er hafin óvænt og örlagarík atburðarás. Nístandi fjölskylduleyndarmál leita dagsljóssins og á milli Jóhönnu og Robertos kvikna sterkar kenndir sem þau kunna varla að bregðast við. Fífa Larsen bjó um árabil á slóðum sögunnar og þekkir vel litróf ítalskrar þjóðarsálar. Grátvíðir er fyrsta bók hennar.  

Skáldsögur Spennusögur Íslenskar bókmenntir Ítalía