Skoða bók

Hættulegur hæfileiki

Sten, Camilla  

Sigurður Þór Salvarsson  

Álfrún Helga Örnólfsdóttir  

Bækurnar um Rebeccu Lekman  

09:28 klst.  

2023  

Réttarsálfræðingurinn Rebecca Lekman er nýflutt frá Bandaríkjunum heim til Djursholm í Svíþjóð til að annast veika móður sína. Fortíðin bankar upp á hjá henni þegar hún fær símtal um nótt frá gömlum samstarfsmanni sem segir henni að ástkona Rebeccu í menntaskóla, Louise, hafi verið myrt á heimili sínu. Louise hafði verið uppreisnargjarn unglingur en var orðin fín frú á glæsiheimili. Hver gat viljað hana feiga? Og hvers vegna hafði Louise reynt að hafa samband við Rebeccu stuttu áður en hún dó - þótt hún hefði strengt þess heit að tala aldrei við hana aftur? Fleiri spurningar vakna eftir því sem Rebecca kafar dýpra og brátt stendur hún frammi fyrir því að spyrja sjálfa sig hvort hún sé reiðubúin að hætta lífi sínu til að komast að því hver drap Louise. Fyrsta bókin í flokki æsispennandi sálfræðitrylla um réttarsálfræðinginn Rebeccu Lekman.  

Norrænar spennusögur Rebecca Lekman (sögupersóna) Skáldsögur Spennusögur Sænskar bókmenntir Þýðingar úr sænsku