Skoða bók
Skólaslit 2 : Dauð viðvörun
2
04:00 klst.
2023
Ár er liðið frá því að hópur hugrakkra krakka gjörsigraði myrkraverur sem höfðu lagt undir sig stóran skóla á Reykjanesi. Allt endaði vel og allir gátu andað léttar. Eða hvað? Þegar unglingadeild skólans skellir sér í ferðalag út á land kemur fljótlega í ljós að enginn er óhultur. Allra síst krakkarnir í öftustu rútunni ... Skólaslit 2: Dauð viðvörun eftir Ævar Þór Benediktsson er sjálfstætt framhald metsölubókarinnar Skólaslita. Sagan birtist fyrst sem ógnvekjandi hrekkjavökudagatal en kemur nú út á bók - sem lesendur munu tæta í sig. Ari H.G. Yates teiknar hrollvekjandi myndir.
Barnabókmenntir Hrollvekjur Ungmennabækur Ungmennabókmenntir (skáldrit) Íslenskar barna- og unglingabækur Íslenskar bókmenntir