Sumarlokun

Hljóðbókasafn Íslands lokar frá 15. júlí til 6. ágúst. Lokað er fyrir pöntun diska á þessu tímabili en við bendum á að áfram er opið fyrir niðurhal og streymi til skráðra lánþega safnsins.

Skoða bók

Rambó er týndur

Yrsa Þöll Gylfadóttir  

Dagmar Íris Gylfadóttir  

05:59 klst.  

2023  

Kennarinn og karókídrottningin Sandra sinnir unglingum af natni á daginn og stundar kaup og sölu á notuðum húsgögnum á kvöldin. Þegar huggulegur maður blikkar hana um hábjartan dag í Sorpu verður hún strax gagntekin og sannfærð um að hrifningin sé gagnkvæm. Þegar hún kemst að því að smáhundurinn hans er týndur veit Sandra að örlögin hafa talað. Kennarinn og karókídrottningin Sandra sinnir unglingum af natni á daginn og stundar kaup og sölu á notuðum húsgögnum á kvöldin. Hún veit að hún þykir sérvitur en hún er sátt við sjálfa sig. Svo framarlega sem hún hleypir engum of nærri sér og hugsar sem minnst um fortíðina ¿ þá er allt í himnalagi. Þau fyrirheit gleymast fljótt þegar huggulegur maður blikkar hana um hábjartan dag á Sorpu. Hún verður strax gagntekin og sannfærð um að hrifningin sé gagnkvæm. Þegar hún kemst að því að smáhundurinn hans er týndur veit Sandra að örlögin hafa talað. Áður en hún veit af er hún gengin til liðs við leitarhópinn og blæs til sóknar í ástarlífinu. Rambó er týndur er grátbrosleg saga um gömul sár og glataða vináttu en einnig um leitina að ástinni og ógöngurnar sem henni geta fylgt. Rambó er týndur er fjórða skáldsaga Yrsu Þallar, sem áður hefur getið sér góðan orðstír fyrir vandaðan og glettinn stíl og áhugaverðar og breyskar persónur. Síðasta skáldsaga Yrsu, Strendingar (2020), var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins.  

Skáldsögur Íslenskar bókmenntir