Skoða bók
Sveindís Jane : saga af stelpu í fótbolta
Sveindís Jane Jónsdóttir Sæmundur Norðfjörð
Hanna Lind Rosenkjær Sigurjónsdóttir
01:02 klst.
2023
Sveindís Jane Jónsdóttir er nú í röð fremstu fótboltakvenna heims. Þessi lykilmanneskja í íslenska landsliðinu hafði þó meiri áhuga á að renna sér á hjólabretti en fótbolta þegar hún var að alast upp á Reykjanesinu en dag einn barst henni bréf. Sagan af því þegar hún fann fótboltann og uppgötvaði að hún hljóp hraðar en hinir á vellinum er leiftrandi skemmtileg. Hin stórkostlega móðir frá Gana og hinn rólyndi faðir styðja hana með ráð og dáð á vegferð hennar frá því að hún er send í markið fram að því að henni er boðið að mæta á landsliðsæfingu. Hér er á ferð saga sem hittir alla fótboltaunnendur í hjartastað.
Afreksfólk Barnabókmenntir (skáldverk) Fótbolti Knattspyrna Kvennaknattspyrna Sjálfsævisögulegar skáldsögur Sveindís Jane Jónsdóttir 2001- Íslenskar barna- og unglingabækur Íþróttakonur