Skoða bók
Það sem þernan sér
Birta Ösp Rósinberg Harðardóttir Þórunn Hjartardóttir
07:57 klst.
2023
Það er erfitt að finna vinnuveitanda sem spyr ekki of margra spurninga um fortíð mína. Svo ég þakka mínu sæla fyrir að Garrick-hjónin hafa ráðið mig í vinnu við að þrífa glæsilegu þakíbúðina sína og útbúa máltíðir handa þeim. Ég get unnið hérna um tíma, verið róleg þar til ég fæ það sem ég vil. Þetta er næstum því fullkomið. En ég hef enn ekki hitt frú Garrick, eða séð inni í gestaherberginu. Ég er viss um að ég heyri hana gráta. Ég tek eftir blóðblettum í kraganum á hvíta náttsloppnum hennar þegar ég þvæ þvottinn. Einn daginn get ég ekki annað en bankað á dyrnar. Þegar þær opnast og ég sé hvað herbergið geymir breytist allt... Ég lofa sjálfri mér. Ég hef gert þetta áður. Ég get verndað frú Garrick á meðan ég geymi mín eigin leyndarmál. Douglas Garrick hefur gengið of langt. Hann fær að borga fyrir hegðun sína. Þetta er einfaldlega spurning um hversu langt ég er tilbúin að ganga...
Breskar bókmenntir Glæpasögur Skáldsögur Skáldsögur Spennusögur Sálfræðitryllir Þýðingar úr ensku