Sumarlokun

Hljóðbókasafn Íslands lokar frá 15. júlí til 6. ágúst. Lokað er fyrir pöntun diska á þessu tímabili en við bendum á að áfram er opið fyrir niðurhal og streymi til skráðra lánþega safnsins.

Skoða bók

Nokkuð óvenjulegur lögmaður

Ravéy, Yves  

Jórunn Tómasdóttir  

Árni Blandon  

02:06 klst.  

2024  

Frú Rebernak vill ekki veita frænda sínum skjól þegar honum er sleppt úr fangelsi. Hann hafði setið inni í fimmtán ár sakaður um nauðgun á lítilli stúlku. Hún óttast að hann kunni að gera dóttur hennar mein. Hún leitar því ráða hjá Montussaint lögmanni sem hafði verið henni innan handar eftir að maður hennar dó. En lögmaðurinn er ekki allur þar sem hann er séður... Franski skáldsagnahöfundurinn og leikskáldið Yves Ravey fæddist í hinum sögufræga bæ Besançon í Frakklandi árið 1953. Hann hefur margsinnis verið tilnefndur til helstu bókmenntaverðlauna Frakklands og hreppti m.a. Marcel-Aymé verðlaunin árið 2004 fyrir skáldsöguna Le Drap. Nokkuð óvenjulegur lögmaður er fyrsta skáldsagan sem kemur út eftir Ravey á íslensku.  

Franskar bókmenntir Nóvellur Skáldsögur Þýðingar úr frönsku