Sumarlokun

Hljóðbókasafn Íslands lokar frá 15. júlí til 6. ágúst. Lokað er fyrir pöntun diska á þessu tímabili en við bendum á að áfram er opið fyrir niðurhal og streymi til skráðra lánþega safnsins.

Skoða bók

Mánasystirin

Riley, Lucinda  

Arnar Matthíasson  

Dagmar Íris Gylfadóttir  

Sjö systur  

18:35 klst.  

2024  

Eftir dauða Pa Salt, milljarðamæringsins sem ættleiddi sex dætur allsstaðar að úr heiminum, lætur ein þeirra, Tiggy D'Apliése, innsæið ráð för og flytur á afskekktan stað í skosku hálöndunum til að hugsa um villt dýr á landareign héraðshöfðingjans fjallmyndarlega, Charlie Kinnaird, sem er í óhamingjusömu hjónabandi og á í baráttu um landareignina. Þessi ákvörðun breytir lífi hennar því þar hittir hún Chilly, gamlan Róma-mann sem segir henni að hún hafi ekki bara sjötta skilningarvitið og sé græðari af Guðs náð, heldur líka að því hafi verið spáð fyrir löngu að þau ættu eftir að hittast og hann myndi senda hana heim til fæðingarstaðar síns við Granada á Spáni. Tiggy uppgötvar tengsl sín við hið sögufræga Róma-samfélag í hellum Sacromonte og að hún á ættir að rekja til "La Candela", sögufrægasta flamengódansara sinnar kynslóðar. Mánasystirin er fimmta bókin í þessum seiðmagnaða bókaflokki sem nefndur er eftir fyrstu bókinn, Sjö systur. Söguþráðurinn byggir lauslega á goðsögnum um stjörnuþyrpinguna Sjöstyrnið. Bækurnar um systurnar sjö eru einhverjar vinsælustu skáldsögur í heimi.  

Fjölskyldusögur Skáldsögur Sögulegar skáldsögur Írskar bókmenntir Þýðingar úr ensku