Skoða bók

Eldhiti

Cleeves, Ann  

Snjólaug Bragadóttir  

Jóhann Sigurðarson  

Shetland  

10:50 klst.  

2024  

Vegna hins góða orðspors sem fer af Hjaltlandseyjum ákveður ensk fjölskylda að flytja þangað með það fyrir augum að skapa betri aðstæður til að ala upp einhverfan son sinn. En þegar lík ungrar barnfóstru drengsins finnst hangandi í hlöðunni við heimilið fara á flug sögusagnir um að barnfóstran og heimilisfaðirinn hafi átt í ástarsambandi. Rannsóknin á dauða barnfóstrunnar reynir mjög á lögreguforingjann Jimmy Perez, ekki síst vegna skrykkjótts ástarsambands hans við Willow Reeves, stjóra morðdeildarinnar. Er Perez tilbúinn að takast á við það sem koma skal? Ann Cleeves er einn virtasti glæpasagnahöfundur heims. Bækur hennar um lögregluforingjann Jimmy Perez, sem gerast á Hjaltlandseyjum (Shetland), hafa slegið í gegn. Breska ríkissjónvarpið, BBC, hefur gert vandaða sjónvarpsþætti eftir sögunum sem njóta mikilla vinsælda. Eldhiti er áttunda og lokabókin í Shetlands-seríunni.  

Breskar bókmenntir Perez, Jimmy (sögupersóna) Sakamálasögur Skáldsögur Spennusögur Þýðingar úr ensku