Sumarlokun

Hljóðbókasafn Íslands lokar frá 15. júlí til 6. ágúst. Lokað er fyrir pöntun diska á þessu tímabili en við bendum á að áfram er opið fyrir niðurhal og streymi til skráðra lánþega safnsins.

Skoða bók

Þögn á öld hávaðans

Kagge, Erling  

Magnús Þór Hafsteinsson  

Jóhann Sigurðarson  

02:36 klst.  

2024  

Geti ég ekki gengið, klifrað eða siglt frá heiminum hef ég kennt mér að loka hann úti. Það tók tíma að læra þetta. Það var ekki fyrr en mér varð ljóst að ég hafði grundvallarþörf fyrir þögn, að ég gat byrjað að leita hennar – og þarna, djúpt undir glym umferðar og hugsana, tónlistar og vélarhljóða, snjallsíma og snjóblásara var hún og beið mín. Þögnin. Í þessari einstöku bók spyr norski ævintýramaðurinn Erling Kagge þriggja spurninga: Hvað er þögn? Hvar er hún? Af hverju er þögnin núna mikilvægari en nokkru sinni í sögu mannkyns? Í kjölfarið gerir hann 33 tilraunir til að svara þessum spurningum. Erling Kagge nýtir einstæða lífsreynslu sína á mörgum sviðum til að nálgast viðfangsefni sitt – mátt þagnarinnar.  

Einvera Hugleiðsla Hávaði Lífið Núvitund Þögn