Viðgerðir í gangi

Verið er að uppfæra tölvukerfi safnsins og sumar bækur spilast ekki. Beðist er velvirðingar á þessu.


 

 

Skoða bók

Einmana : tengsl og tilgangur í heimi vaxandi einsemdar

Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir  

Kristín Björk Kristjánsdóttir  

10:07 klst.  

2024  

Öll finnum við fyrir einmanaleika einhvern tíma á lífsleiðinni. Sum upplifa hann aðeins tímabundið, hjá öðrum er hann viðvarandi en hann snertir líf okkar allra með einhverjum hætti. Í Einmana - tengsl og tilgangur í heimi vaxandi einsemdar fjallar Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir um einsemdina frá fjölmörgum hliðum. Hún skoðar hver eru einmana, hvenær og af hverju en leitast líka við að varpa ljósi á það sem einmanaleikinn getur kennt okkur og hvernig bregðast megi við honum. Í bókinni leitar Aðalbjörg víða fanga, hún fjallar um rannsóknir og skrif fræðimanna, kannar birtingarmyndir einsemdarinnar í fjölmiðlum, listum og dægurmenningu auk þess sem hún gerir raunverulegri reynslu einmana fólks skil. Útkoman er fróðlegt rit um mikilvægi tengsla og þá merkingu sem hægt er að finna í lífinu þrátt fyrir einmanaleika.