Skoða bók

Sonurinn

Rostain, Michel  

Friðrik Rafnsson  

Jóhann Sigurðarson  

05:17 klst.  

2024  

Þessi bók fjallar ekki um dauðann - þetta er bók um lífið! Þessi hrífandi skáld-ævisaga varð metsölubók í Frakklandi eftir að hún hreppti hin virtu Goncourt-verðlaun fyrir fyrstu skáldsögu árið 2011 og hefur síðan verið þýdd á fjölda tungumála. Í bókinni er fjallað með frumlegum og snjöllum hætti um eitt hræðilegasta áfall sem hent getur foreldra - barnsmissi. Með einstakri hógværð og fáguðum næmleik leiðir Michael Rostain okkur inn í heim flókins sambands föður og sonar sem með hæðum sínum og lægðum raskar í engu skilyrðislausri ást foreldris til barns síns. Sonurinn hefur sterka tengingu við Ísland sem birtist lesandanum á áhrifamikinn hátt undir lok bókarinnar. Michel Rostain (f. 1942) er kunnur tónlistarleikhússtjóri og rithöfundur í Frakklandi. Hann býr í Arles.