Skoða bók

Heknevefurinn

Mytting, Lars  

Jón St. Kristjánsson  

Hildigunnur Þráinsdóttir  

Systraklukkurnar  

15:20 klst.  

2024  

Schweigaard kom heim á Bútanga með Jehans, nýfæddan son Astridar Hekne. Hann iðrast enn beisklega að hafa látið rífa gömlu stafkirkjuna og aðskilja kirkjuklukkurnar sem voru steyptar til minningar um samvöxnu tvíburasysturnar í ætt Astridar. Hann verður heltekinn af að finna myndvefnaðinn sem systurnar ófu í þeirri von að hann vísi honum leiðina til að sameina klukkurnar á ný og bæta fyrir brot sín. Jehans veit ekkert um samviskubit prestsins. Honum hefur verið útskúfað úr Hekne-ættinni en er í staðinn orðinn fengsæll veiðimaður í fjöllunum. Og þar hittir hann dag einn dularfullan veiðimann frá öðru landi ... Heknevefurinn eftir Lars Mytting, einn vinsælasta höfund Norðmanna um þessar mundir, er sjálfstætt framhald Systraklukknanna sem heillað hefur lesendur hvarvetna og hlotið fjölmargar viðurkenningar. Þetta er stórbrotin frásögn um þjóð á tímamótum, um áþján og ófrelsi fortíðar, um beislun fossanna og fyrsta rafmagnsljósið í myrkri sveitanna, og um styrjöldina miklu.  

Norskar bókmenntir Skáldsögur Sögulegar skáldsögur Þýðingar úr norsku