Skoða bók

Til hnífs og skeiðar : um íslenska matarmenningu

Brynhildur Ingvarsdóttir   Grímur Þ. Valdimarsson   Guðmundur Jónsson   Guðrún Hallgrímsdóttir   Laufey Steingrímsdóttir   Nanna Rögnvaldardóttir   Sólveig Ólafsdóttir   Örn Daníel Jónsson  

Ásdís Thoroddsen  

07:35 klst.  

2021  

Til hnífs og skeiðar er greinasafn um íslenska matarmenningu. Hér er á ferðinni fyrsta bókin sem fjallar um matarmenningu Íslendinga í sögulegu ljósi og á þverfaglegan hátt. Skoðað er hvernig neysla, velmegun og víðtækari alþjóðleg tengsl hafa aukið fjölbreytni í íslenskri matargerð, dregið úr fordómum og auðveldað þjóðinni að tileinka sér nýjungar. Lengst af var megineinkenni íslenskrar matarmenningar að hún byggðist hvorki á korni né rótarhnýðum. Fæði Íslendinga var því um aldir gjörólíkt fæði flestra jarðarbúa, án kolvetnaríkrar uppistöðu. Mikilvæg breyting varð seint á 19. öld þegar korn lækkaði í verði. Með "kolvetnisbyltingunni" dró úr vægi dýraafurða og nýjar neysluvenjur mótuðust: rúgbrauð, hafragrautur, smjörlíki, sykur og önnur ódýr innflutt kolvetni urðu fljótlega grunnvörur vinnandi fólks í bæjunum að viðbættum sykri. Nú er matur er ekki lengur aðeins morgunmatur, hádegismatur og kvöldmatur heldur getur hann verið upplifun. Fjölgun ferðamanna hérlendis hefur hraðað þróuninni og skapað fleiri tækifæri til nýsköpunar. Um leið hafa Íslendingar uppgötvað auðlegðina í nærumhverfinu og hvernig hægt er með hugviti og þekkingu að breyta hráefni sem áður var talið óæti í lostæti.  

Greinasöfn Matarmenning Mataræði Matvælaframleiðsla Neysluvenjur Ísland Þjóðfræði