Skoða bók

Biblía Dorés

Lindgren, Torgny  

Heimir Pálsson  

Guðmundur S. Brynjólfsson  

07:25 klst.  

2024  

Nafnlaus sögumaður tekur að sér að segja sögu Gustave Dorés (1832-1883), eins þekktasta bókaskreytis nítjándu aldar. Sagan af Doré verður hins vegar saga hins nafnlausa öryrkja sem hefur skapað veröld sína með stuðningi úr biblíumyndum Dorés en af ævi listamannsins segir fátt. Aðalpersóna sögunnar er hreint ekki eins og fólk er flest, hvorki læs né skrifandi, en skaparinn hefur lagt honum líkn með þraut, gefið honum eiginleika sem gera hvort tveggja í senn að skapa honum yfirburði og gera honum kleift að taka hverju því sem að höndum ber. Skopskyggnin bregst ekki Torgny Lindgren en um leið brýnir hann orðalaust fyrir lesanda sínum að leyfa sér ekki einfaldar skýringar á manneðlinu. Heimir Pálsson íslenskaði. Torgny Lindgren var einn mesti stílsnillingur sænskra nútímabókmennta, ljóðskáld, skáldsagnahöfundur og leikskáld. Biblía Dorés er sjötta bók Lindgrens sem kemur út á íslensku en hinar eru Naðran á klöppinni, Fimm fingra mandlan, Randafluguhunang, Norrlands Akvavit og Lokasuðan.