Skoða bók
Litla bakaríið í Brooklyn
11:29 klst.
2024
Í litla bakaríinu í Brooklyn er rómantík í lofti innan um girnilegt úrval af kökum og sætabrauði. Á hæðinni fyrir ofan býr Sophie Bennings, nýkomin til New York. Hún er alls ekki í rómantískum hugleiðingum eftir sársaukafull sambandsslit. Hún hellir sér út í nýja starfið á vinsælu tímariti þar sem hún skrifar um mat. Þar hittir hún dálkahöfundinn Todd McLennan. Hann freistar - rétt eins og ljúffengu bollakökurnar í bakaríinu. Og á maður ekki einstöku sinnum að leyfa sér að smakka? Þegar Sophie og Todd kynnast er ást á mat ekki eina ástríðan sem þau deila. Hefur Sophie loksins hitt draumaprinsinn í borginni sem aldrei sefur?
Breskar bókmenntir Ljúflestrarbækur Skvísusögur Skáldsögur Ástarsögur Þýðingar úr ensku