Slökkt verður á eldra appi safnsins 14. apríl

Áfram verður hægt að hlusta á bækur hér á vefnum.

Smelltu hér til að ná í nýja appið

Skoða bók

Móðurást : Draumþing

Kristín Ómarsdóttir  

Þórunn Hjartardóttir  

Móðurást  

04:01 klst.  

2024  

Oddný Þorleifs- og Þuríðardóttir stendur á mörkum barns og konu, og rígheldur í bernskuna því hana óar við veröld fullorðnu kvennanna með striti sínu og áþján. En á fimmtánda sumri er henni boðið til Jónsmessugleði þar sem henni opinberast kynngimagnaður og seiðandi kvennaheimur sem dagsdaglega er hulinn bak við ægivald karlanna. Kristín Ómarsdóttir heldur hér áfram að segja á sinn næma og einstaka hátt skáldaða sögu langömmu sinnar á ofanverðri nítjándu öld í Biskupstungum. Draumþing er annar hluti frásagnarinnar sem hófst með Móðurást:Oddnýju, en fyrir hana hlaut Kristín Fjöruverðlaunin 2024.  

Oddný Þorleifsdóttir 1863-1953 Skáldsögur Skáldævisögur Íslenskar bókmenntir