Skoða bók
Tengdamamman
08:46 klst.
2024
Hrífandi skáldsaga um ýmsar hliðar mannlegra samskipta eftir sænska skáldsagnahöfundinn Moa Herngren, einn af höfundum Netflix-seríunnar Bonusfamiljen. Ása er einstæð móðir sem hefur alltaf verið í nánu sambandi við son sinn. En þegar hann kynnist nýrri kærustu breytist allt. Samskiptin verða fljótlega erfið. Ása leggur sig fram um að mynda tengsl við tengdadótturina en það er lagt út sem afskiptasemi. Áður en langt um líður stendur hún frammi fyrir átökum sem munu sundra fjölskyldunni. Ása fær að vita að sonurinn skynjar uppvöxt sinn og líf þeirra saman með allt öðrum hætti en hún. Meinar sonur hennar það sem hann segir eða lætur hann stjórna sér? Þegar móðir Ásu deyr finnst henni eins og hún sé alein í heiminum.