Skoða bók
Ferðalok
07:32 klst.
2024
Söguleg skáldsaga um misjöfn kjör og hverfula gæfu, spunnin út frá ævi þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar og einkennilegum atburðum sem urðu í Öxnadal þegar hann var ungur. Sagan birtir nýja og magnaða sýn á skáldið og það samfélag sem fóstraði hann, jafnt í solli stórborgarinnar sem fátækri sveit á norðurhjara - andstæður sem mótuðu bæði manninn og verk hans. Skáldið fellur í stiga um miðja nótt og fótbrotnar. Að morgni er hann færður á spítala þar sem hann liggur fársjúkur og rifjar upp sælar og sárar stundir ævi sinnar. Á hugann leita meinleg örlög smaladrengs í sveitinni heima en fornar ástarraunir svífa líka um hugskotið, allt sem var sagt og ósagt. Arnaldur Indriðason hefur verið vinsælastur íslenskra höfunda heima og erlendis í aldarfjórðung. Bækur hans hafa verið þýddar á yfir fjörutíu tungumál og selst í tugmilljónum eintaka. Ferðalok er tuttugasta og áttunda skáldsaga hans.