Skoða bók
Gáfaða dýrið
06:05 klst.
2024
Hvernig stendur á því að við erum eins og við erum og gerum það sem við gerum, oft þvert á alla skynsemi? Eru til skýringar á því? Þrátt fyrir langa þróunarsögu mannsins og umtalverða vitsmuni erum við enn að mörgu leyti frumstæð. Þess vegna stangast viðbrögð okkar stundum á við rökhugsunina. Til að átta okkur betur á sjálfum okkur og öðru fólki, skilja samskipti og samfélag, takast á við streitu, ótta og einmanaleika, er gagnlegt að þekkja dýrið sem í okkur býr. Sú þekking getur hjálpað okkur að líða betur í eigin skinni. Hér fjallar Sæunn Kjartansdóttir um samspil vitsmuna og ósjálfráðra viðbragða og sýnir hvernig aukin sjálfsþekking getur unnið gegn ómeðvitaðri sjálfsblekkingu.