Skoða bók

Slóð sporðdrekans

Skúli Sigurðsson  

Hjörtur Jóhann Jónsson  

09:21 klst.  

2024  

Hörkuspennandi saga um örvæntingarfullan föður á framandi slóðum, sex byssukúlur og úlfa í sauðargærum. Slóð sporðdrekans er æsispennandi, ógnarhröð og heldur lesandanum í algerri óvissu til söguloka. Versta martröð dr. Gabríels Tuma Hreinssonar verður að veruleika þegar börnin hans hverfa sporlaust í fjölskyldufríi í Kosta Ríka. Hann sannfærist um að þau hafi verið numin á brott en lögreglan telur að þau hafi aðeins strokið og séu skammt undan. Gabríel verður því sjálfur að elta mannræningjana uppi. Hann veit ekki af hverju börnunum var rænt eða hver var að verki en hann gerir hvað sem það kostar til að endurheimta þau. Það er það eina sem skiptir máli – en hve langt má ganga til að vernda börnin sín? Frá höfundi Stóra bróður og Mannsins frá São Paulo.  

Norrænar spennusögur Skáldsögur Spennusögur Íslenskar bókmenntir